Landskrifstofa Menntaáætlunar Evrópusambandsins (LME)
LME er þjónustuskrifstofa Comenius, Erasmus, Leonardo da Vinci, Grundtvig, Jean Monnet og þveráætlana (transversal programmes) Evrópusambandsins. LME rekur einnig skrifstofu Europass (safnheiti yfir staðlaða menntunar- og starfshæfnimöppu) og Evrópumiðstöð náms- og starfsráðgjafa (Euroguidance).
Helstu verkefni
- Reglulegt samstarf við menntamálaráðuneyti og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um framkvæmd áætlunarinnar á Íslandi
- Kynning á áætluninni, markmiðum hennar, forgangsatriðum, umsóknarfrestum og miðlun upplýsinga til væntanlegra umsækjenda
- Vinna með matsmönnum og matsnefndum við mat á styrkumsóknum og frágangi á rökstuðningi fyrir styrkveitingum
- Formleg ákvörðun um úthlutun
- Gerð samninga um verkefni sem hljóta styrki, greiðsla styrkja og eftirlit með framkvæmd verkefna
- Uppgjör á reglulegum samningum við framkvæmdastjórn ESB vegna þeirra styrkja sem íslenska landskrifstofan úthlutar
- Endurskoðun og úttekt á verkefnum í samráði við framkvæmdastjórn ESB
- Aðstoð við mat stjórnvalda og framkvæmdastjórnar ESB á menntamálum




