Grundtvig - fullorðinsfræðsla
Grundtvig aðstoðar fullorðna við að hefja nám í öðru Evrópulandi. Grundtvig er einn af fjórum áætlunum menntaáætlunar ESB. Margs konar verkefnastyrkir og einstaklingstyrkir eru veittir til kennara og starfsmanna í fullorðinsfræðslu.
Grundtvig styrkir evrópsk samstarfsverkefni, endurmenntun, uppihald fyrir verðandi kennarar eða starfandi fulloðrinsfræðslukennarar, sjálfboðaliðaverkefni, vinnustofur og net.
Með Grundtvig, fullorðinsfræðsluþætti og menntaáætlunar ESB, er stefnt að því að efla Evrópuvitund í símenntun/endurmenntun með evrópsku samstarfi. Reynt verður að kynna nýjungar, auka gæði menntunar og auðvelda aðgengi fullorðinna að námi.
Stefnumörkun framkvæmdarstjórnarinnar frá 2006 - það er aldrei of seint að læra og - það er alltaf ástæða til að læra, hnykkir á mikilvægi þess að fullorðnir haldi áfram að læra allt lífið til að eiga auðveldara með að fá vinnu.
Markmið Grundtvig er þess vegna að gefa fullorðnu fólki möguleika á að bæta þekkingu sína og færni, og er aðallega ætlað að ná til fólks með litla menntun.
2012 er ár “active aging“ og hvetjum við framtíðarumsækjendur að íhuga vel þetta málefni.
Fullorðnir teljast til 16 ára og eldri, utan formlegs skólakerfis.
Fréttir og tilkynningar
Auglýst er eftir umsóknum fyrir aðstoðarkennara í Grundtvigáætlunina (05.03.2010)
Ertu núverandi eða framtíðar fullorðinsfræðslukennari eða starfsmaður? Langar þig að starfa sem aðstoðarkennari við fullorðinsfræðslustofnun í Evrópu?
Grundtvig veitir styrki til einstaklinga þ.e. kennara eða starfsfólks innan fullorðinsfræðslustofnana sem óska eftir að dvelja við evrópska fullorðinsfræðslustofnun með það að markmiði að kenna og/eða aðstoða, þróa og koma í framkvæmd verkefnum. Dvalartími er 12-45 vikur. Margar evrópskar stofnanir leita eftir að fá aðstoðakennara og eru þær kynntar á heimasíðu okkar. Kynntu þér Grundtvig aðstoðarkennaraáætlunina á hemasíðunni. Sjá einstaklingsstyrki hér til vinstri.
Umsóknarfrestur er til 30. mars 2012


