Umsóknarfrestir Grundtvig 2012

Endurmenntun (IST):

16. janúar 2012 (fyrir námskeið frá 1. maí 2012)

30. apríl 2012 (fyrir námskeið frá 1. september 2012)

17. september 2012 (fyrir námskeið frá 1. janúar 2013)

Miðstýrð þróunarverkefni:

2. febrúar 2012

Samstarfsverkefni:

21. febrúar 2012

Vinnustofur:

21. febrúar 2012

Aðstoðarkennari:

30. mars 2012

Sjálfboðaliðaverkefni 50+:

30. mars 2012


 

Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Grundtvig - fullorðinsfræðsla

Grundtvig aðstoðar fullorðna við að hefja nám í öðru Evrópulandi. Grundtvig er einn af fjórum áætlunum menntaáætlunar ESB. Margs konar verkefnastyrkir og einstaklingstyrkir eru veittir til kennara og starfsmanna í fullorðinsfræðslu.

Grundtvig styrkir evrópsk samstarfsverkefni, endurmenntun, uppihald fyrir verðandi kennarar eða starfandi fulloðrinsfræðslukennarar, sjálfboðaliðaverkefni, vinnustofur og net.

Með Grundtvig, fullorðinsfræðsluþætti og menntaáætlunar ESB, er stefnt að því að efla Evrópuvitund í símenntun/endurmenntun með evrópsku samstarfi. Reynt verður að kynna nýjungar, auka gæði menntunar og auðvelda aðgengi fullorðinna að námi.

Stefnumörkun framkvæmdarstjórnarinnar frá 2006 - það er aldrei of seint að læra og - það er alltaf ástæða til að læra, hnykkir á mikilvægi þess að fullorðnir haldi áfram að læra allt lífið til að eiga auðveldara með að fá vinnu.

Markmið Grundtvig er þess vegna að gefa fullorðnu fólki möguleika á að bæta þekkingu sína og færni, og er aðallega ætlað að ná til fólks með litla menntun.

2012 er ár “active aging“ og hvetjum við framtíðarumsækjendur að íhuga vel þetta málefni.

Fullorðnir teljast til 16 ára og eldri, utan formlegs skólakerfis.

 

Fréttir og tilkynningar

Fornleifadeild Náttúrustofu Vestfjarða ásamt fimm evrópskum samstarfslöndum hlaut á dögunum styrk að upphæð fjörtíu og fimm milljón króna frá Mennatáætlun Evrópusambandsins til tveggja ára . Verkefnið ber heitið Fostering Adolt Learner Empowerment  Throug Storytelling and Floklore eða FALESAF